Skráðu þig á póstlistann

Skrá netfang







                

 

Riverside Spa á Hótel Selfossi er einstök heilsulind að evrópskri fyrirmynd þar sem ljúft er að hverfa frá önnum hversdagsleikans og endurnærast á líkama og sál.   Riverside Spa heilsulind er í hlýju og glæsilegu umhverfi þar sem samspil íslenskrar náttúru er í hávegum haft með vatni, eldi og ís.   Þess má geta að auðlind vatnsins er þema Hótels Selfoss í allri sinni dýrð sem er vel viðeigandi m.t.t. hönnunar þess og staðsetningu rétt við bakka Ölfusár.

Riveside Spa hefur að geyma hágæða gufuklefa með mismunandi áhrifamætti og hitastigi; Steambath er blautgufa með hreinsandi eucalyptus ylmi, sem er einstaklega frískandi og hreinsandi.  Sanarium er notalegur saunaklefi með millistigs raka og sítrónuilmi, sem er slakandi og endurnærandi.  Til að ná fram sem bestu virkni mælum við með því að skrúbba heita og opna húðina með ískurli og baðast í sérútbúnum sturtum og steypibaði sem veitir einstaka vellíðan.   Í Riverside Spa er að finna stóran og tignarlegan innbyggðan heitan pott með arineldi og dulúðlegri lýsingu sem gefur sérstaka stemningu, slökunarherbergi með hægindastólum og arineldi, og setustofu þar sem gestir geta sest niður og fengið sér hressingu. 
Auk þess er að finna á Riverside Spa fyrsta flokks snyrti- og nuddstofu í almennri þjónustu með úrval af meðferðum og dekri. Sjá nánar: Verðskrá 2010

 

Nánari upplýsingar og tímapantanir á snyrtistofu og heilsulind í

síma 482 2005 og á riversidespa@riversidespa.is

 


Spa - Smellur

Innifalið er gisting í eina nótt í tveggja manna herbergi, þriggja rétta kvöldverður hússins, morgunverður af hlaðborði og aðgangur að heilsulind Riverside spa.

Verð fyrir tvo aðeins kr 27.800.-

sjá nánar um tilboð og smelli