Hafa samband | Um okkur | Veftré
Íslenska Hótelið
Your browser does not support iframes.
Skráðu þig á póstlistann
Skrá netfang
Hótel Selfoss er glæsilegt og nútímalegt 99 herbergja hótel, staðsett á Selfossi í sveitarfélaginu Árborg. Hótel Selfoss opnaði eftir stórvægilegar viðbætur og endurnýjun þann 1. júní 2002. Þá bættust við 79 sérlega vel útbúin lúxus herbergi.
Á Hótel Selfossi er háklassa veitingastaður, Riverside restaurant sem tekur allt að 300 manns í sæti. Fullkomin veislu, funda og ráðstefnuaðstaða er í eldri hluta hótelsins sem tekur allt að 450 manns í sæti.
Hótel Selfoss býður uppá glæsileg herbergi. Hægt er að velja um Standard, standard superior, delux og svítu. Herbergin eru með gervihnattasjónvarpi, háhraða tölvutengingu, síma, smábar, hárþurrku og öryggishólfi. Hægt er að fá sent uppá herbergi straujárn og straubretti. Auk þess er boðið uppá almenna herbergisþjónustu fyrir gesti Hótel Selfoss.
Í verslunarkjarna er að finna auk Riverside Spa, Stofuna hárstúdíó og barinn Riverside Lounge.
Á Hótel Selfossi er kvikmyndahúsið Selfossbíó, nýlegt og glæsilegt með vönduðum sætum og fullkomnu hljóð- og myndkerfi. Selfossbíó er í fullum rekstri og í samvinnu við Sambíóin, Skífuna og Myndform, svo þar eru ávallt nýjustu myndirnar í sýningu og margar stórar frumsýningar á ári hverju. Með Selfossbíó bætast við möguleikar á tveimur ráðstefnusölum til viðbótar fyrir alls 180 manns.
Nafn:
Rafpóstur:
Símanúmer:
Fjöldi fullorðinna:
Fjöldi barna yngri en 2 ára:
Tímabil:>
Frá:
Til:
Senda Fyrirspurn
Hótel Selfoss óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum árs og friðar, með kærri þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári.
Megi gæfan fylgja ykkur á nýju ári.
Nýjárskveðja,
Starfsfólk Hótels Selfoss
Nánar
Verið velkomin á glæsilegan veitingastað á Hótel Selfossi, njótið þess að snæða ljúffengan mat að hætti matreiðslumeistara okkar í notalegu umhverfi með útsýni yfir Ölfusá og Ingólfsfjall...
Riverside Spa heilsulind er í hlýju og glæsilegu umhverfi þar sem samspil íslenskrar náttúru er í hávegum haft með vatni, eldi og ís. Auk þess er að finna á Riverside Spa fyrsta flokks snyrti- og nuddstofu í almennri þjónustu með úrval af meðferðum og dekri..