Fundir og ráðstefnur
Hótel Selfoss býður uppá frábæra aðstöðu fyrir fundi og ráðstefnur. Á hótelinu eru þrír mjög vel útbúnir fundarsalir og er mögulegt að opna á milli salanna svo úr verði einn stór sem tekur alls um 400 manns í sæti.
Öllum búnaði s.s. skjávörpum, hljóðkerfi og ljósum er stýrt með nýjustu tölvutækni.
Boðið er uppá fyrsta flokks þjónustu á mat og drykk fyrir fundargesti, en á Hótel Selfossi er fullkomið a la carte eldhús og cook and chill kerfi sem getur afgreitt allt að 550 manns á skömmum tíma.
Starfsfólk Hótel Selfoss leggur mikinn metnað í að viðhalda aðgengilegri aðstöðu ásamt góðri þjónustu svo úr verði árangursríkir fundir og ánægðir gestir. Þá er lögð rík áhersla á að hverjum viðburði sé sniðinn aðbúnaður sem hentar hverju sinni.
Á Hótel Selfossi er Selfossbíó, glæsilegt kvikmyndahús með vönduðum sætum og fullkomnu hljóð- og myndkerfi. Selfossbíó er í fullum rekstri og í samvinnu við Sambíóin, Skífuna og Myndform, svo þar eru ávallt nýjustu myndirnar í sýningu og margar stórar frumsýningar á ári hverju. Með Selfossbíó bætast við möguleikar á tveimur ráðstefnusölum til viðbótar fyrir alls 180 manns. www.selfossbio.is
Fáðu nánari upplýsingar hjásölustjóra eða í síma 480-2500.
Skoðaðu hér matseðla og fleiri myndir.
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Teikning af ráðstefnusölunum og bíósölunum.


Fundarsalir - Húsrými |
|
|
|
||||
|
|
Bíó |
Skólast. |
U-uppst. |
Hanastél |
Borðhald |
m2 |
Hæð |
|
1 Aðalsalur |
250 manns |
144 manns |
40 manns |
400 manns |
228 manns |
288 |
3,6-5,4m |
|
2 Suðursalur |
100 manns |
60 manns |
28 manns |
150 manns |
80 manns |
154 |
3,6m |
|
3 Norðursalur |
80 manns |
44 manns |
24 manns |
140 manns |
72 manns |
143 |
3,6m |
|
Salir 1+2+3 |
340 manns |
280 manns |
92 manns |
680 manns |
380 manns |
585 |
3,6-5,4m |
|
Bíósalur 1 |
125 manns |
- |
- |
- |
- |
- |
- |
|
Bíósalur 2 |
55 manns |
- |
- |
- |
- |
- |
- |
|
|
|
||||||








