Hótel Selfoss

Hótel Selfoss er glæsilegt og nútímalegt 99 herbergja hótel, staðsett á Selfossi.  Hótel Selfoss er vel staðsett fyrir þá sem ætla að njóta alls þess sem í boði er á Suðurlandi, hvort sem um er að ræða rólega náttúruskoðun eða æsilega afþreyingakosti sem Suðurland býður uppá.

Á Hótel Selfossi er glæsilegur veitingastaður, Riverside restaurant með stórfenglegu útsýni yfir Ölfusá og Ingólfsfjall. Veitingastaðurinn tekur allt að 200 manns í sæti. 

Fullkomin veislu, funda og ráðstefnuaðstaða er hótelinu sem tekur allt að 450 manns í sæti. Auk þess er notalegur bar á hótelinu, tengdur veitingastaðnum.

Hótel Selfoss býður uppá glæsileg herbergi. Hægt er að velja um Standard, standard superior, delux og svítu. Herbergin eru með gervihnattasjónvarpi, háhraða tölvutengingu, síma, smábar, hárþurrku og öryggishólfi. Hægt er að fá sent uppá herbergi straujárn og straubretti. Auk þess er boðið uppá almenna herbergisþjónustu fyrir gesti Hótel Selfoss.

Riverside Spa er fyrsta flokks heilsulind með snyrti- og nuddstofu.  Um er að ræða einstaka heilsulind að evrópskri fyrirmynd sem var formlega tekin í notkun vorið 2008. Riverside Spa hefur reynst frábær viðbót við hótelið og er mikil lyftistöng við afþreyingu og þjónustu í Sveitarfélaginu öllu.

Stofan er hárgreiðslustofa sem starfrækt er á hótelinu, þar er hægt að panta sér tíma og láta stjana við sig fyrir árshátíðina eða hvert svo sem tilefnið er.

Á Hótel Selfossi reka Sambíóin kvikmyndahús í glæsilegum sölum með vönduðum sætum og fullkomnu hljóð- og myndkerfi. Sambíóin eru ávallt með nýjustu myndirnar í sýningu og margar stórar frumsýningar á ári hverju. Með kvikmyndahúsinu bætast við möguleikar á tveimur ráðstefnusölum til viðbótar fyrir alls 180 manns.