Velkomin á Hótel Selfoss !
Við vonum að þú/þið munið njóta dvalarinnar hjá okkur. Vinsamlegast kynnið ykkur þjónustuna sem í boði er:
Vakning: Viltu láta vekja þig. Veldu nr. 9 á símanum og þá færðu samband við gestamóttöku sem skráir hjá sér hvenær þú vilt verða vakin/n og hringir svo í þig á tileknum tíma.
Útskráning (check out): Á brottfarardegi á herbergið að vera rýmt kl. 12.00 á hádegi.
Farangur: Hægt er að geyma farangur í farangursgeymslu móttökunnar. Ef óskað er eftir aðstoð, gjörið svo vel og hringið í gestamóttöku. nr. 9 á síma.
Skilaboð: Berist þér fax á á bréfsíma hótelsins verður það sent inná herbergið. Hafið samband við gestamóttöku varðandi nánari upplýsingar.
Sjónvarpsstöðvar: Rúv, stöð 2, Skjár einn, Sky News, BBC World, CNN, IITV, BBC Zone, TVE, ZDF, VOX.
Morgunverður: Á Riverside restaurant er borið fram morgunverðarhlaðborð á milli kl. 7.00 og 10.00 alla morgna. Hægt er að fá morgunverð uppá herbergi en þá skal láta gestamóttöku vita kvöldið áður. Einnig ef gestir óska þess að fá morgunverð fyrir kl. 07.00 að morgni. 300 kr. aukagjald.
Hægt er að fá uppá herbergi:
- Herbergisþjónustu Riverside restaurants.
- Straujárn og strauborð.
- Barnarúm.
- Auka sæng og kodda.
- Annað? Hafðu sambandi við gestamóttöku í síma 9.
Ath að allir gestir Hótel Selfoss fá frítt í Sundhöll Selfoss. Sýna þarf herbergislykil. Sjá nánar: Þjónsta á Selfossi.
Hótel Selfoss
Eyrarvegi 2
800 Selfossi
Sími: +354 480 2500
Fax: + 354 482 2524
info@hotelselfoss.is
www.hotelselfoss.is
Herbergissími:
Móttaka: Veljið 9.
útlanda símtöl: Veljið 0+00
Milli herbergja: Veljið herbergisnúmer.
Lína út innanlands: Veljið 0. Ath að til þess að getað hringt úr herbergissíma út af hótelinu þarf að opna fyrir hann í gestamóttöku.
Verðmæti: Hótel Selfoss tekur ekki ábyrgð á fjármunum eða öðrum verðmætum sem geymd eru í herbegjum. Öryggishólf er í herbergjum og þarf að velja sér leyninúmer. Lesið leiðbeiningar eða fáið aðstoð.
Hægt er að skipta íslenskum krónum í erlenda mynt í gestamóttöku gegn 7% þóknunar.

Herbergisþjónusta: Pantið uppá herbergi mat af girnilegum a la carte matseðli.
Riverside restaurant er opinn alla daga frá kl. 12.00 til kl. 24.00 og stundum lengur um helgar.
Komið og skoðið glæsilegan a la carte matseðil.
Borðapöntun í gestamóttöku. (9) eða (480 2500)
Barinn á Riverside býður mikið úrval drykkja og kokkteila.
Verið velkomin !

Heilsulind: Á Hótel Selfossi er hafinn undirbúningur að umfangsmiklum breytingum á áður ónýttum húshluta hótelsins. Snemma árs 2007 er áætluð opnun á fullkominni líkamsræktarstöð og einstakri lúxus heilsulind, Northern Light Spa sem verður ríkulega útbúin tyrkneskum gufuböðum, heitum laugum, regnvatns sturtum, hvíldaraðstöðu og barþjónustu. Einnig verður glæsileg snyrtistofa við heilsulindina þar sem hægt verður að láta dekra við sig á margvíslegan hátt ásamt því að slaka á í ljósaböðum.
Þjónusta á Hótel Selfossi:
Á hótelinu er barinn Riverside lounge og Stofan hárstúdíó.
Selfossbíó er á Hótel Selfossi. 
Þjónsta á Selfossi:
Sundhöll Selfoss: Í sundhöll selfoss er 25 m útilaug og 16 m innilaug, þrír heitir pottar, vaðlaug, vatnsgufa, sauna og stór barnalaug með þremur rennibrautum. Einnig er lítill tækjasalur á staðnum.
Opnunartími:
Mánudaga til föstudaga: 6.45 - 21.15. Laugardaga og Sunnudaga: 10.00 - 20.00.
Aðrar sundlaugar í nágrenni Sefoss:
Sundlaug KHÍ Laugarvatni sími: 486 1251
Sundlaugin Árnesi sími: 486 6117
Sundlaugin Brautarholi sími: 486 5500
Sundlaugin Flúðum sími: 486 6790
Sundlaugin Hellu sími: 487 5334
Sundlaugin Hraunborgum sími: 486 4414
Sundlaugin Hvolsvelli sími: 487 8607
Sundlaugin Laugalandi sími: 487 6545
Sundlaugin Laugarskarði Hverag. sími: 483 4113
Sundlaugin Reykholti Biskupst. sími: 486 8807
Sundlaugin Seljavöllum sími: 487 8810
Sundlaugin Stokkseyri sími: 483 1567
Sundlaugin Þorlákshöfn sími: 483 3807
Fatahreinsun:
Efnalaug Suðurlands
Austurvegi 56, 800 Selfossi.
Sími: 482 1554
Ath að gestamóttaka Hótel Selfoss tekur að sér að fara með föt í hreinsun og sækja þau fyrir gesti hótelsins.
Bankar:
Landsbankinn, Austurvegi 20, 800 Selfossi.
Glitnir, Austurvegi 9, 800 Selfossi.
Hársnyrtistofur:
Stofan hársnyrtistofa, Hótel Selfossi sími: 482 3993.
Hárgreiðslustofa Önnu, Kjarnanum Austurvegi.
Hárgreiðslustofan Verona, Austurvegi.
Hárgreiðslustofan Krítik, Austurvegi.
Hárgreiðslustofan, Mensý, Austurvegi.
Snyrtistofur:
Snyrtistofa Ólafar Bergsdóttur sími: 482 1616.
Snyrtistofan Myrra sími: 482 177
Suðurlandssól. Hægt er að fara í ljós, nudd og trimform. Á stofunni er einnig nuddpottur og sauna. Sími: 482 3555.
Apótek:
Lyf og heilsa, kjarnaum Austurvegi sími: 482 1177.


