Riverside SPA

Riverside Spa á Hótel Selfossi er einstök heilsulind að evrópskri fyrirmynd þar sem ljúft er að slaka á, og endurnærast á líkama og sál.   Riverside Spa er í hlýlegu og notalegu umhverfi þar sem vísað er til íslenskrar náttúru í allri hönnun. Eldur, Ís, vatn, gufa og norðurljós er fléttað inn í hönnun baðstofunar með einstaklega smekklegum hætti.

Í Riveside Spa er bæði boðið upp á hefðbundið íslenskt gufubað og sauna. Stór og fallegur heiturpottur þar sem líkt er eftir stjörnubjartri nótt þar sem norðurljóin dansa er einkar notaleg upplifun. Við bjóðum upp á þrjár tegundir af slökunar sturtum, fallvatns, regnskóga sturturnar okkar eru vinsælastar en svo er einnig hressandi að kæla sig niður í gusu úr köldu fötunni. Í Riverside Spa er notalegt slökunarherbergi þar sem hægt er að leggjast í góða stóla og jafnvel gleyma sér um stund við snarkandi arineld.
Í notalegum sófakrók er gott að setjast niður og fá sér hressingu í góðum félagsskap.

Riverside Spa býður upp á  fyrsta flokks snyrti- og nuddstofu með úrval af meðferðum og dekri.

Nánari upplýsingar og tímapantanir á snyrtistofu og heilsulind á www.riversidespa.is í síma 482 2005 og á riversidespa@riversidespa.is

Spa - Smellur

Innifalið er gisting í eina nótt í tveggja manna herbergi, þriggja rétta kvöldverður hússins, morgunverður af hlaðborði og aðgangur að heilsulind Riverside spa.
Verð fyrir tvo aðeins kr 28.900.--

sjá nánar um tilboð og smelli